13.01.2008 23:23:13 / nokom

Hæhæ

Hey..langaði bara að segja nokkur orð, tékka hverjir skoðuðu síðuna;) hehe

Skólinn auðvitað byrjaður, komin smávegis í hestana með frænku minni og allt gott bara.
Spurning hvort maður bloggi á myspace, eða dó bloggmenningin út með áramótaskaupinu?

Ég er alveg í vandræðum með ákvörðun um hvað ég ætti að fara að læra =S þetta er eithvað svo flókin spurning, en ég hef þó ennþá góðann tíma til að hugsa.

 Keypti mér minn fyrsta hlut á ebay um daginn :D get ekki beðið eftir að fá hann sendann..

 

OK, bara segja pínu lítið..tékka á síðunni.Ég, Yasmín og kettlingarnir biðjum að heilsa.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 00:49:27 / nokom

Yhippyyyy

Já það eru nokkrar síðurnar að deyja hérna á cyberspaceinu af völdum myspace æði..en ekki nokom!! mér þykir einfaldlega allt of vænt um hana til að leyfa því að gerast =D Hún er u.þ.b þriggja ára ;)

Jájá..enneinum sunnudegi lokið núna..sit hér eftir mjög nice sturtu með frábærri hárnæringu..mmm <=D
Hmm.sunnudagar..fara þeir venjulega ekki í að vera fúll yfir að það sé mánudagur daginn eftir ha =7 Jáw, reyndar. En sunnudagar virðast líka vera þeir dagar sem ALLIR karlpeningarnir í bænum sem eru :
a) á ford eða dodge pick up
b) með of mikið af rakspíra
c) á aldursbilinu 21-35
d) 50% gay
e) með símann límdan við eyrað
f) oooof tanaðir og bara ríkir fyrir þetta allt saman

..virðast þurfa að koma á Nings. Án gríns..kom eitt "par" af svona metró- gæjum inn þarsíðasta sunnudag, EKKI stoppað í símanum á meðan að að þeir: púlluðu upp að staðnum, pöntuðu mat, átu hann, fóru aftur út og að hugsa um hundana..og allan tímann á meðan staðurinn fyyyylltist af rakspírafýlu. Gjörsamlega yfir allt..jahá shitt..

Svo auðvitað fórum við í rauðakross sjálfboðaliðastarfsáfangann okkar mánudaginn síðastliðinn og vorum að byrja að undirbúa fatamarkaðinn sem við verðum með næstu helgi. Það var nú meira fjörið ;) fara í gegn um mörg tonn af fötum sem fólk hefur ákveðið að gefa í hvitu rauðakross gámana..og þá meina ég að þetta eru mörg tonn!!Við komum inn í fataflokkunarstöðina /húsið og þar á gólfi blasir við manni þessi riiiissssaaaa margramannhæðahái haugur af pokum..og það var bara það sem kom þann daginn!! hólý crap íslendingar eru duuuuglegir að henda fötum!!
Og við erum þar að flokka ýmiskonar dress sem koma upp úr þessum pokum og velja það sem er hæft til að fara á fatamarkaðinn..sumt bara fínasta dót (auðvitað koma þarna inn fötin sem vara í rauðakross búðina á laugarvegi ;)  hehe..en omg..eina orðið..já einn pokinn sem ég fann var bara arriving straight from the 80's !!! vá hahahaha og þ.á.m fann ég dress sem ég keypti handa sytsir minni litlu..fyrir 85 ballið hahahah..fjólublá buxnadrakt (og extrasett af herðapúðum) og röndóttur fjólublár sundbolur!! hahahahaha...alveg meiriháttar =) en það sem er ennþá skemmtilegra er að ég fann mér skó þar!!!! pg það var bara ekkert smá..loðin kósý sæt stígvél eins og ég er búin að leita mér að frekar lengi!!! jeeeehaaa...og getiði hvað ég keypti þau á!!!....uhh 600 krónur!!!! =D jááááá ohh þeir eru svo kósý og sætir I'm soo happy =P

Er svo búin að vera dugleg að reyna að koma mér afstað í rækinni á ný..búin að vera fersk og mæta í allskonar jógatíma í baðhúsinu!! ekkert smá kósý skal ég segja þér ;) ætla alla vega að halda því áfram og bæta fleiri tímum við..þarf náttúrulega eiginlega að mæta á hverjum einasta degi..ÞAR SEM ERU NÆSTUM BARA 15 SKÓLADAGAR EFTIR!! eruði að pæla hvað tíminn líður hratt! gvuuððð...jólafílingurinn bara að hellast yfir mann hérna ;) hehehehe
talandi um skólann..það eru tveir einstaklingar sem er með mér í ákveðnu fagi í skólanum..og í hvert skipti sem ég sé þau þá kemst ég ekki hjá því að finnast: strákurinn alveg eins, og hegða sér alveg eins og litla "dýrið" eða eitthvað sem hét held ég Ari í svona norrænni goðafræðis teiknimynd sem okkur var sýnd í 203 held ég í íslensku..svona durgur..
og stelpan er alveg eins og strákur sem var yfirmaðurinn minn í einni vinnu sem ég var í..nefni kanski ekki nöfn hérna..en ósjálfrátt kom upp nafn í hausnum á mér sem ég kalla hana bara. =)

Fór í úlpuleiðangur um daginn og mátaði alveg slatta af úlpum..en tók bara frá í einni búð..var mjög fúl þegar ég kom aftur og fékk að heyra það að úlpan hafi verið seld 10 mínútum áður en ég kom =( ohh svekkelsi! og ég bara veit ekkert hvernig úlpu ég á að reyna að kaupa mér. Ég er með svo pikkí hugmynd núna..er samt kanski að reyna að fá mig til að chilla aðeins á því og finna mér bara þokkalega feita og heita úlpu fyrir kuldabola =) (þó það kanski sýni sig oft að það sem maður leitar af nákvæmlega kemur oftar en ekki bara beint til manns..ha..seceret =P )
Og já þegar ég fór aftur í smáralindina að tékka á úlpumálunum..þá bara hitti ég Huldu buldu =) það vara bara rosa gaman að hitta stelpuna...ooog fá hjá henni dælulykil ;) hehe það er bara massaflott..notaði hann einmitt fyrst í kvöld. Spjallaði við hana í smá stund og sýndi henni flottu flottu pennana sem ég var að "keypa" mér =P

Alltaf gaman að koma í skólann ha..læðast inn á ÚÚÚTIIIISKÓÓM..ha..ef ég mæti seint, uppgvötva ég sjálfa mig að læðast bókstaflega framhjá "their lair"..til að vekja ekki "grýluna"..ha..how sick??

Já já..er þetta ekki bara fínt í bili kærleiksbirnir?? ^^,
skelli inn nokkrum skemmtilegum ábendingum á síður sem ég festist mjög oft inni á ;) Heyrumst

http://beautyaddict.blogspot.com/
http://ljosmyndakeppni.is/
http://www.caphillbarbie.blogspot.com/

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 21:25:31 / nokom

Welcome into the world

Hæ aftur fólk ;)

Það fer að verða kalt úti!! Kuldaboli er kominn að bíta ykkur í rassgatið! =O
Hvar er úlpan sem ég lofaði mér!!! HA!!!??
Spurning um að fara að finna hana bráðlega..kanski jafnvel taka mitt fyrsta skref og panta á netinu íhíhíhíhíh >;) En seriously..það fer að verða kalt fólk. Búhú

Ein önnur þreytuhelgin búin..vinnuhelgin semsagt..ahhhh hlakka til næstu íúhíhú!! Frí jeiiii! Og það er verið að setja af stað í huga okkar girnilega maraþonið Scrubs!! Aha..erum að pojla í kóóóósý (þið vitið að miðjunafnið mitt er kósý;) föstudegi í náttfötum með ávexti, og nammi og popp, og súkkulaðibrunn, og ísköku á þremhæðumogfranskrisúkkulaðikökumeðísogeplapæmeðrjómaogkókosbollueftirréttnóakroppogræskrispískökum!!!!! hahahaha ;)

Jæja, við kíktum í ikea í dag...og hvað gerðist? Já inga keypti dówt!! Haha, fæ alltaf kaupæði þegar ég fer þarna inn. Mhm, endaði á því að kaupa ruslatunnu, lampaskerm, límrúllu og handklæði.
"Hey..ég má þetta! er nýbúin að endurskipuleggja herbergið mitt og það er alltaf að verða meira og meira í stíl"

Hlakka mjög til að TOPSHOP opni í kringlunni!!! jeee shibbí ;) Þá fer hún kanski að verða interesting aftur =P eejjj segi sonah. Það mun allavega spara tíma! Akkuru langar manni í allt þegar maður á ekki pening?

Mamma bara að fara til london næstu helgi, og svo til stokkhólms helgina eftir það!! Alltaf meiri ferðin á henni!! Verður örugglega rosa stuð..gellan bara að fara á fótboltaleik og læti =P
Hey, hvað varð um planið okkar Sandra?..að horfa actually á einn fótboltaleik og reeeyyyyna að hafa athygli og áhuga?? uhhhh...

Ég sökka í dönsku..eins og kallinn sagði "Honum brá svo, að hann hætti að tala dönsku" hahahahhahaha
Það styttist í það að önnin sé hálfnuð!!! hólýmólý

Og spennan fyrir útborgun er auðvitað magnspennuþrungin!! Annaðhvort fæ ég eina helgi greidda, og tekinn 70% skattur af henni og það er svo lítið að ég get ekki einusinni reiknað það fyrir ykkur..eða þá 2 helgar með 100% skattkorti!!! shitt hvað þetta er spennandi..úff...

Svo var ég að horfa á körfuboltaleik um daginn, grindavík-keflavík. Hálft grindarvíkurliðið voru háir, brúnir strákar..og ég fór að velta fyrir mér...
er Sadun búin að eignast svona marga krakka í Grinavík??


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 01:22:10 / nokom

Hola banana

You've got to blogg de blogg, you've gotta blog de blog!

Já...helgin búin aftur =( og ég er ennþá handlama af þeim sökum að ég er með ofvaxnar gelneglur. Þetta er hræðilegt. Maður getur ekkert gert..Nema slasa sig ÁTS. En ég er að komast í lagfæringu núna í dag held ég.
 
 
 
Djööööfull er maður blankur alltaf!! ég haata að vera blönk! Díses kræst.

Jú mikið rétt..slökunarhelgi sem var æðinæs var að ljúka. Keyrðum á þingvelli á föstudags-aftenen. Ég var að kúkí buss úr hræðslu allan tímann. Ok..svo var ammili á Laugardagskvöldinu, byrjaði sem afmælið hennar Aprílar- og breyttist svo klukkan 12 í afmæið hans Dabba haha..það var samt enginn afmælisborði sem breyttist með tilþrifum (eins og ég sá fyrir mér) en þetta var samt rosa næs. Krakkarnir héldu svo niðurí bæj og á ég eftir að heyra allt um þann skandal- veit bara að Apríl elskan skellti sér á línuskauta!! haha..

"skrifa um miðnætti sama dag;"

Hææj! já komin úr lagfæringu!! þetta er allt annað líf shitt =D þær eru geggjað fallegar- ég er mjööög ánægð!
Já hitt var dísaster- ég braut mína eingin nögl fyrir miðju- undir gelinu og það var fokking óþægilegt (og er því hún er brotin og marin =(

Oh ég elska að byrja vikuna á því að mæta klukkan tíu á mán og þri! jeeiii haha =P

Verð samt að segja að ég skil ekki alveg hvert skótíska hátískuhúsanna er að fara akkúrat núna..allt rosa þykkt og háir hælar-bognir og þykkir að sjálfsögðu...Jæja, kanski ekki mitt áhyggjuefni ;) hehe Svolítið fríkaðir litir samt en maður hlýtur að finna sér eitthvað, hvað annað!
Og litirnir í fatatískunni eru alveg búnir að ná mér =) ég er alltaf fyrir svolítið svona venjulega liti- er samt með svona peach-orange-pastel lit á heilanum sem mig langar svo að sauma kjólinn minn úr..ömurlegt að hafa lítið úrval af efnum hérna á klakanum. Alltaf ástæðan fyrir öllu..já við erum á klakanum elskan!
 

Marc Jacobs               
Giuseppe Zanotti
 
en rakst á þessa líka..þeir eru æði cósý fyrir veturinn!!
 
 
og þessir minna mig á skóna hennar Soffíu sem er bara gaman 
 
 
ooogg ég ætla bara að halda áfram að tjá mig og segja hvað mér finnst þetta ótrúlega asnalega skipulagt þarna í framkvæmdunum niðurfrá við Dalveg og Smáratorg. Þar er bara búið að beina fólki- gangandi vegfarendum inn á stóru umferðargötuna hjá hringtorginu (m.a með því að stoppa strætó þar og hleypa af-taka burt göngustíginn og ekkert að gera til bráðarb.) og það er ekki erfitt að keyra á einn svoleiðis þegar sólin blindar þig..eða einn snarneglir niður afþví að allt í einu sér hann viðkomandi og annar bombar aftan á annan fyrir aftan hann!!! argh! Eins gott að þarna komi Toys'r us!!!!!



En er fólk hætt að kommenta?? fólk getur ekki neitað því að það elskar að fá komment >;) haha..var líka að bæta inn í draumabíla, og setja fleira inn í fyndið..m.a video sem maja systir sýndi mér..SNILLD hahahaha..hlæjið af ykkur esið.
Sjáumst í grímunni (fékk þetta á heilann)

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 22:58:45 / nokom

Hæææj!

Hæhæ elskulega fólk ;) I'm back*!

Jaháójá..ég er að reyna að koma mér í gírinn á ný og eins og þið sjáið er síðan í einu af hinum árlegu uppfærslum og breytingum núna hehe..
Þarf aðeins að breyta bannernum..en já kei..það er svoldið miiiikið búið að gerast síðan ég skrifaði síðast sem var hvað..í JÚLÍ!!
Allir búnir að skrifa uppgjör sumarsins og komnir á fullt í þessa rútínu sem við kvörtum undan en kvörtum síðan undan að sakna þegar það er jólafrí.

Ég er með óhemjulangar neglur núna sökum seinrar lagfæringar..sem reddast á föstudaginn :D jei
Það er stelpa sem ég mæli sterklega með og hún er alveg virkilega klár; Síminn hjá henni er 696 2605 hehe..smá ókeypis auglýsing :P
Jáww..kanski að maður taki the old style punkta-blogg!! ;)


  • Það er þannig að við fórum í 2 vikur til tenerife (Eyþór, ég, apíl, dabbi, sófí og bergur) og nutum góða lífsins í frábærum hita, sólbaði, kokteildrykkju, froðupartýum, klúbbum, verslunarferðum, go-karti, vatnsrennibrautagörðum, mörkuðum, vinahópum, nuddi, borða geggjaðan mat, brjáluðum leigubílum, meiri verslunarferðum, endalausum sólböðum, hárfléttingu, milli herbergis hringinga og mööörgu öðru geggjuðu to make your day. Þetta var vel heppnuð ferð og bara æðislegar minningar þaðan. Kanski skelli ég inn myndum þegar ég fæ þær í tölvuna. Sakna þess að vera i kæruleysis fríi og hugsa bara um að fá sem mestan lit og kokteila!! hahaha. Við kynntumst frábærum íslendingum úti og vona bara að við höldum áfram að hittast sem fyrst!! Takk fyrir mig allir! þetta var æði =*
  • Skólinn auðvitað byrjaður..en tekinn með of miklu chilli kanski til að byrja mð..en enda er ég bara komin á það plan að ég er komin í hálfgert chill..tek 9 einingar á næstu önn og þá FINITO!! ÚTSKRIFTARPARTÝ!! AFMÆLI og búin með skólann...jeiii! hahaha..já ég er VIRKILEGA sátt við mitt skólaskema og er búin kl 10 á föstudögum (eyþór gerði reyndar enn betur og hann er kominn í helgarfrí á fimmtudögum kallinn!!) Hann er í borgó og nýtur sýn vel þar ;)
  • Við stelpurnar skráðum okkur í sjálfboðið starf hjá rauðakrossinum í skólanum og fáum fyrir það 2 einingar minnir mig..kanski 3 ;) það er allt gott
  • Við Eyþór erum komin með ógeð á reykjarvíkinni og erum búin að nota hvert tækifæri til að forða okkur úr bæjnum hehe..komum samt alltaf aftur. En erum búin að fara auðvitað á bíladaga í sumar, uppí sveit að veiða og læra að kasta flugu með pabbz, bústaðarferðir, rúnt, ættarmót, gullfoss og geysir og margt fleira.
  • Ég er búin að taka herbergið mitt heima í gegn..fyndið miðað við hvað er ekki mikið dót þar hvað er mikið dót þar haha! Skipulagði betur "dótið" og kom fyrir. Ég gerði mér auðvitað lítið fyrir og skrapp í ikea..heimili þeirra tækifærissinnuðu..nh djók..verslaði bara smá þar ;)
  • Var að taka úr mér flétturnar..og er að fara ÚR HÁRUM ashitt. Díses..gæti gefið britney vænan skammt af hári...spurning samthvort það færi á hausinn..
  • Lindsey Lohan hefur ákveðið að sögn pabba síns að flytja úr hollywoo...nei hey! hah! vitlaus staður
  • Djammsins saknað..og uppástungur um djamm koma nú iðulega fram um miðja viku..en fyrir stuttu var tekið á þetta papaball og daginn eftir stelpu-road trip til AK. Þar var djammað og skemmtunin í hámarki. Aldrei séð jafn mikinn troðning! Þar var dansað af...uhh..lítilli stelpuhóru 92' rassgatið. Já það er heil önnur saga.
  • I've had it up 2 here af vinnunni..langar ekki að vera að vinna lengur :O æl
  • Mæli miiiiiikið með myndinni death proof!!! hún er æði! Ég er svo mikill kúkur og neeeeiiiitaði að horfa á hana..en svo kom á daginn að ún er geðveikt flott mynd með geeeeðveikum lögum! úff heitt í hamsi! ;) haha..Ein af mínum uppáhalds núna hahahaha :P Svo er skrubs að brillera. Sandra vakti upp á ný/ minnti á þessa snilldarþætti sem maður festist alltaf í að horfa á í TíVíinu þegar það er on..en maður á bara að taka alminnilegt maraþon á þetta! ha?! Sandra!! næsti mánuður???
  • Ég er ótrúlega ánægð með eplið mitt. Þessi dýrgripur fer aldrei langt undan sjónum og getur gert næstum allt!! ég dýrka að vinna á þett og þær rúla. Allir í macca..hinir kúkí buzz.
  • Ég gerði snilldar-afmæliskort handa AprílSólS á ammilisdaginn sinn =* til hammó again!! ég er mjög stolt af því og reikna með að fara að teikna og selja svona handa hverjum sem er við hvert tækifæri. Hafið bara samband á síðunni eða í einkamáladálk DV
  • Afmæli framundan hjá gellunni og verður rössum blastað þar! Stay tuned!
  • Ég er virkilega að spá í að prófa að þæfa ull og gera draumapeysuna mína fyrir veturinn haha..það væri samt smá fyndið
  • Eyþór búinn að kaupa sér geeeeðveika myndavél..núna fer ég að pósa!! haha. Hún kúkar ekki í buss
  • Auðvitað er ég komin í halloween pælingarnar núna á þessum árstíma!! þetta gerist alltaf..næstum á sama tíma, eins og skammdegisþunglyndi hjá sumum =P
  • Ræktin og önnur hreyfingarmál hafa ekki verið að komast fyrir í hausnum á mer. Shitt hvað ég hef eeeennnnga löngun til þess vá ég hef aldrei verið svona löt ever..í hreyfingu..en er samt að drífa mig á stað. Sunna og Sandra eru alltaf jafn krúttíbollulegar og fóru í afródans! það er örugglega æði ;) standið ykkur stelpur svo þið getið nú dansað þokkalega á næsta balli!! haha

Shitt hvað ég er búin að láta dæluna ganga hér maaaan =P haha..somebody stop me! Haha..en ok..ég skelli einhverju inn í bráð til að halda ykkur heitum. Ætla að bæta nýju inn allstaðar svo fylgist með ;) Luv...Inga

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 09:09:53 / nokom

Weeeiiii

Hey u peeps!

Er að blogga úr glænýja maccanum mínum! :D jeeiiii!

Ég er alveg ótrúlega ánægð með þetta "investment", og hlakka til að hanga meina i tölvunni..hehe segi svona! Þetta er svona Macbook ET (i know..like e..t.. haha..ET phone hooooome!) Ég verð samt að segja hvað ég var orðin virkilega pirruð á því hvað var mikið vesen á milli mín, bankans og Apple. Fólk dónalegt eða ekki með allt í gangi, og ég þurfti að liggja í símanum hálfan daginn í gær :evil: Eeen ég nennti því til að fá tölvuna í mínar hendur =D og það gékk. Hver kann ekki að faxa skiluru?!


Er ekki búin að venjast því að það sé gott lyklaborð á henni..eða að músin virki..eða að það standi nærri 5 tímar á batteríinu..hvað þá að snúran dettiggi alltaf í sundur! hahaha (og að ógleymdu diskadrifi sem kviknar í endrum og eins...getur samt ekki brennt diska! hmm..)

ójá ójá þið heyrðuð rétt!! það styttist óðum í tenerife.. og án gríns..þá liggur við að allt sem maður gerði í sumar er eitthvað sem stefnir að því..En allavega búið að koma öllu á hreint. Passports ready..með asnalegum myndum, búin að fá farseðlana í hendurnar og þar með fullborga ferðina, mastercard check..og bara allt. Meirasegja komin með a.m.k 3-4 tegundir af sólarvörn og að ógleymdum labella varasalvanum með sólarvörninni í..hahaha

Ég verð líka bara að troða inn í þennan pistil aðdáun og yfirlýsingu á ást minni á Bananaboat kremunum! Keypti mér bæði aloe vera græna girnó gelið (sem er við ÖLLU..mátt troða því á allan kroppinn, kjaftinn á þér og hárið..það kallar maður all in one) og svo keypti ég aloe after sun lotion gula kremið sem er frábært rakakrem og sólbrúnkufestandi. Næst kaupi ég daaark tanning lotion oh yeah baby!! U know why! =D Og ég skal svo sverja það að þetta mun vera til á mínu heimili það sem eftir er! Kaupa birgðir á Tenerife. Uhúúúhú..(þetta var hljóðið í mér ð ganga af göflunum..já göflunum)

Bíllinn okkar kæri fór loksins á verkstæði í vikunni. Þetta var svolítið langur prósess. Það er óþolandi hvað getur liðið langur tími frá því ð maður byrjar á einhverju þangað til að það er búið. Eins og cocopuffs skálin sem er hér við hliðina á mér..alveg ókláruð. Nee..er að tala um hvað maður hefur alltaf lítinn tíma andskotinn hafið það. Hér eru nokkur dæmi;
-Klára fullnaðarskírteinið. Mitt 2 ára skírteini rann út í maí..er búin að vera með bráðarbirgðaheimild allan tímann á meðan, og er bara fyrst núna á fimmtudaginn að fara í akstursmatið. Á þá eftir að borga fyrir nýtt teini, taka mynd og bíða meira.
-Fá nýtt vegabréf. Vegabréfið mitt rann út fyrir 2 árum síðan, og ég fór og sótti um nýtt um daginn til að vera safe með tenerife. Fór og borgaði og tekin mynd. Á þá að bíða í 10 daga eftir því, nema 4 dögum seinna er hringt og sagt að myndin sé ekki rétt í vegabréfið og þessvegna þurfi ég að taka nýja. Þarf þá að fara aftur á staðinn og taka aðra mynd, ennþá myglaðri og byrja aftur að bíða. Samt. 14 dagar
-Fá apple tölvu. Fór í apple fyrir 3 vikum síðan. Nema það að núna þurfa allir að fara á biðlista því það er skortur á apple tölvum í skandinavíu. Semsagt..bíð í 3 viur eftir tölvunni, og tekur 2 daga fyrir mig að kaupa tölvuna vegna misvillandi upplýsinga, óskiljanleika, asnalegheita, slow mo process, tregðu, misskilnings og að lokum pirrings. Ég var ekki ánægð í stuttu máli.
-Bíll á verkstæði. Klesst var utan í bílinn minn þegar ég var að vinna um miðjan júní, prosessinn að fara með tjónaskýrslurnar fór strax í gang og viku seinna mátti ég velja mér verkstæði. Ok, þá þarf að finna verkstæði, fara með bílinn í skoðun, bíða eftir tíma (sem ég þurfti sjálf síðan að minna á!) og fara með bílinn. þetta tók..uuhhh 1 og 1/2 mánuð.

Ok..hætt að pirrast fyrir ykkur haha. Eg ætla að slutta þessu núna..Chao


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 18:08:20 / nokom

Óendurgoldin ást....á Cocopuffsi..

Hata máva...

 

Já gott fólk, gleðin ríkir hér á bæ..nýjir tímar hafa verið æðislegir =D

Ef ég hleyp nú svona doldið hratt yfir þá er málið það að við byrjuðum náttúrulega á bústaðarferðinni sem ég sagði frá i fyrra bloggi..og stuttu þar á eftir kom það á daginn að mér féllst í hendur starf sem flokkstjóri í bæjarvinnunni í Kópavogi! Sem er alveg æðislegt ;) er með alveg hreint æðislegan hóp..og er búin að vera úti allan síðastu mánuði! Haha( ha..pot í sunnu!)

Maður er svona að safna á sig nettu tani haha ;) eða það þýðir fyrir mig að fara úr offwhite-> yfir í pale...eða þú veist hvað ég meina.

En hef samt algjörlega komist að því hvað er miklu auðveldara að vakna kl 7 heldur en um 8 eða eftir það..alveg þvílíkur munur! Stefni kanski meirasegja á það að byrja að fara

Í ræktina FYRIR vinnu...kanski brjálæði :S..seinna gerist það.

Anyways, þá klifum við stelpurnar Esjuna í júní (Apríl og Sunna stefna á 12 skipti og eru búnar með allavega 8-9 þær dúlegu) En þetta var fyrsta ferðin okkar Söndru allavega..er þaggi? En þetta var hörkuspennó, á flatbotna strigaskóm og með nesti í töskunni ;) hehe stoppað hjá base 4 til að éta, teknar nokkrar myndir og armbeygjur ossona..

Svo er það auðvitað stórkostlega A.K ferðin sem var beðið eftir með miklum spenningi (niðurtalning í þá og Tenerife ferðina =D) Og það er ekki hægt að segja annað en að þetta var algörlega toppurinn af öllum ferðum sem við höfum farið þangað!!! Vá hún mun aldrei gleymast. Fólkið, maturinn, ALLIR BÍLARNIR, að taka þátt í öllu skrallinu, veðrið, sumarbústaðurinn, fríið, stúss í kring um bíla (skipta um hosur ogannað..nota kveikjubyssuna haha) djammið, bílasýningin og allt spilaði saman í að gera þetta að bestu ferð sem ég hef farið!!..Við vorum í sumarbústað fyrir utan AK, borðuðum 6-7 sinnum á greifanum yfir tímann (meðaltal 2 á dag hahaha), hoppuðum í troðna bæjinn um kveldið, grilluðum æðislegan mat, settum bílinn okkar í götuspyrnuna- sem var bara geeeðveikt! –Höfðum auðvitað sambönd sem gerðu það a verkum a maur komst inn á allt óáreyttur..held meira að segja að ég sé barasta í bílaklúbb Akureyar! Svo vorum við með 2 bíla á sýningunni =D Haha..Að sjá sinn eigin bíl í fjörinu er alveg þvílíkur spenningur!! Og bara showið!..

Svo voru teknir ófáir rúntarnir útum allan bæj með nýju græjurnar og diskinn ;) Svo sáum við líka 2 bíla fara fyrir lítið þarna..úff..annar þeirra keyrði niður staur, snérist og yfir á hina akgreinina og æj..ekki fallegt. Æhj..en my point is að þetta var bara alveg the best of the best. Þið vitið það sem voruð þarna..takk fyrir mig og æðislegan tíma þarna.

Og svo áfram með söguna þar sem ég er búin að vera svo leeeengi að skrifa þetta blogg.

Ég er að setja myndir inn!!! Vááá ótrúlegt en satt.. koma frá AK og einnig sumarbústaðarferðinni sem við nokkrir krakkar kíktum í. Já rólega óundirbúna bústaðarferð Austur =) Fórum á ótrúlega flottan stað..gistum í 2 nætur og tókum bara túristadæmið á þetta! Gullfoss..geysir..eden, þar sem keyptar voru bara mestu snilldarhúfur ever! Þær eiga stað í ferðatöskunum okkar til tenerife!! Víííí

Eyddum líka u.þ.b kl tíma í að leita að “Natúrlaugh Hrúní..” en það var eitthvað svo allt of flókið að við gáfumst upp eftir að hafa keyrt um allllllt! Og fórum á flúðir að éta ;)

Oooog ammilið hans Eyþórs lovely var þann 13! Brunuðum í Húsafell á nóinu og bjuggum okkur til þetta geeeggjaða tjaldstæði ;) Það var samt ekki jafn gott veður og menn gerðu ráð fyrir..en attílæææ! Bara teppi og peysur. Sungið var..rólað..farið í sund (kl 4 um nótt) og daginn eftir stolið trampólíni af innocent krökkum..varorðið svoldið svona vafasamt í endann hhaha! Allir farnir að detta af ossona...Ég á voða lítið af myndum, en þegar þærkomast inn í tölvuna..þá skal ég setja þær inn...

Minnir mig á það...fór í Apple um daginn og ætlaði voða spennt og bjartsýn að kaupa mér yndislega nýja spanki’n tölvu..en neibb. Takk fyrir bless....biðlisti..með u.þ.b 40 manns!!! Kræst! En ok ég er allavega orðin númer 7 núna..jeiii..hlakka ógiglega mikið til!!!

Ok..ætla að kveðja í bili og vona að þið getið skemmt ykkur að lesa þessa RITGERÐ.

Hm

Bæjó..your..Inga =)

Loverly  


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 01:03:03 / nokom

Slow mo

Allright, hva.. er blogg málið??

Jáh, bloggið er semsagt komið í hægari gírinn..hjá öllum held ég bara..en samt..segi frá hæglætunum seinustu;

 

Síðasta helgi var tekin á nettu flippi (barnalega orð..en)..Var semsagt að vinna mína aukavinnu og búin að dæma mig í vinnu ALLA DAGANA  f-l-s-m, og Eyþór elska skreppur í bústað á föstudaeginum..kmur voða sætur að gera lokatilraun til að fá mig með á föstudegi kl. 6 en ég í þessum gír að það sé enginn sénsað redda vinnunni..búin að taka þtta á mig ossona skít. Nema hvað að Apríl kemur svo færandi hendi með þá hugmynd að kvöldi laugardags að skella okkur bara í bústaðinn til félaganna!? Ég var bara..uh..æji..hvað með vinnuna á morgun..?..En þá kom Eyrún snillingur í vinnunni og bauðst til að taka vaktina fyrir mig!!! ÚhÚ! Þannig að..við settum bensín á bimmann fyrir 5500 krónur..í KLINKI. (Afgreiðslugaurinn éssó var bara..uh..ha?)

Við Apríl og Dabbi brunuðum svo norður upp úr 10 leytinu án þess að segja nokkrum manni frá því. Frábær stemmari þar á ferð!

Þetta var síðan bara með snilldarlegastu sumarbústaðarferðum sem ég hef upplifað haha...alveg geggjað gaman, og að koma fólkinu á óvart var mjöööög sniðug hugmynd! Nobody saw it coming!

 

Skemmtileg uppákoma með bíllyklana mína..fékk Berg nágranna til að redda mér! =D

Svo fór ég að rifja aðeins upp..hvað varð um áramótaheitið mit??? Ekkert vesen!

Díses hvað þetta ámótaheit misheppnaðist hraplega..úff. Éger ekki búin að vera NEITT annað en f*cking vesen =( ekkert að ske í lífi mínu nema hlutir sem ganga ekki, koma á vitlasum tíma, bila, fara úr böndunum, vinnan..bla blab bla

Ég biðst bara afsökunar á því að hafa verið vesen við alla. HahaVorum að taka við 1/3 af búslóð inn til okkar í litlu hýbílin til geymslu..mjög kósi og hlutirnir að gera góða hluti ;) Vinnan í brennidepli..er í 3 vinnum að púsla hverja viku fyrir sig.. 

Hlakkar sjúúúklega mikið til að hverfa af landi brott með villingunum mínumí sól og hita!! Aaahhhh..þetta er málið. Boot camp á fullu..missti samt af föstudagstímanum..sem erekki gott því þjálfararnir komu á Nings á fimmtudagskvöldinu og gátu kallað mig með nafni..þannig að þeir vita að égkom ekki haha..fæ feitast eitthvað punishment

 

Er orðin minnislaus núna..en framundan er eitt af high light-um sumarsins!! Dadadamdammdaaammmm!!*

Ójá!! BÍLADAGAR KOMA SENN!! Shitt hvað tilhlökkunin er svakaleg =D Þetta verður alger snilld sem verður nýtt til helv*tis!!! Ha..10 dagar gott fólk!!!
 

Jæja..ætla að slaufa þessu..gera eittað annað en að skrifa ritgerð fyrir ykkur.

Chaó í bili ;)

 

verð að setja inn eitt lítið p.s og segja frá yndislega draumnum mínum um daginn, en hann gekk þannig fyrir sig að Eyþór droppaði til mín glænýjum, svörtum GT Mustang '06 og Mustang skóm, sem hann lét mig bara hafa og ég mátti keyra eins og ég vildi..þetta var aaaallveg yndiiiissssleg tilfinning =D Svo pípti klukkan!!!! :evil::evil::evil:


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 02:28:21 / nokom

Beigla og FRANSKAR!

Hæj..þá er skólinn búinn og allir fara ressir og gátir inn í sumarið með andlitið í sólina =)
Vona að öllum hafi gengið vel og líði vel núna,

Ég er sem stendur í 3 vinnum en er að greiða aðeins úr þessu og það er smá séns að ég fái vinnu sem hentar mér bara svo ótrúlega fullkomlega!! Úff það væri næs ef ég fengi hana..plís plís...plíííís!!

 

Svo er maður bara á fullu í boot camp! Vá hvað ég er ánægð að hafa farið í það! Ég veit að ég er varla búin að tala um annað en þetta er bara svo geggjað, vá maður finnur stax algjöran árangur og maður styrkist svo upp á öllum sviðum! Úff..þótt þetta séu bara erfiðustu æfingar sem ég hef verið að gera/ og mesta hlaup ever þá er það totally þess virði!! =D fyrir þá sem ekki vita þá er þetta Boot Camp

Svo erum við Apríl geggja dúlegar í nammibindindis veðmálinu okkar og höfum staðið okkur aaaalllveg! Það var að bætast við annað bindindi sem stendur núna í ca. 3 vikur eða svo..og getiði hvað það er1 Ójá..áfengisbindindi!!! hahhah..við verðum dauðar eftir þetta allt saman!!

 

Við stelpurnar hittumst í dag, eftir sma flakk á okkur Söndru í beiglunni okkar hérna í bæ..og fengum okkur að eta eftir að sandra lék flotta hljóðið í öllum í veislu þegar Kári sullaði úrkoppinum sínum fyrir framan alla..og já ég fékk mér Létt pylsu..ha..heyrðu þetta allir??...LÉTT PYLSU!!! Vá þessu bjóst ég aaaaldrei við! Léttpylsa í grófu brauði! Hahah..og afgreiðslu-gaaaaauuuuurinn var svo fokking fúll..oooog hann potaði í pylsuna!! Mig langaði að segjvið hann að hann ætti bara að segja upp..hann væri slæmur fyrir viðskiptin! Og mig langaði í nýja pylsu! OOOG hann var líka með IPOD í eyrunum!! Talandi um employee og the month!

 

Svo fórum við stelpurnar á smá runt niðuríbæj og keyptum okkur salat á Mikkídííís (McD)og þar tókst mér aaalveg snilldarlega að sulla yfir mig balsamic sósunni sem fylgir og stinkaði til helvítis! Tók svona að grípa hana og um leið og ég var að láta orðin falla úr mun mér ,,Jess ég náði að grípa haAA...” þá missti ég hana yfir mig alla =(

Sandra kom þar með golden moment í svona smá panicki þegar hún var farin að hafa áhyggjur af því að fá ekki franskarnar sínar..franskar..FRANskar...FRANSKAR!

 

Æhj..annars lítið sem ég man akkúrat núna til að bulla áfram um..þurfti bara að skrifa eitt heitt hér..má ekki deyja hérna síðan mín heita..komst samt að því að ég set aldrei inn myndirnar mínar..af því að ég er aldrei með myndavélina eftir að hafa tekið myndir =S
Er ennþá að deyja úr obsessioninu mínu á Mustang..fer bráðlega að leita hjálpar..ég lofa

  

Kveð með þessu yndislegu myndum..og vona að allt gangi vel á morgun!!

Heyrumst! P.s verið dúleg að kommenta!


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 19:32:44 / nokom

Stupid ass

Hæhæ, varð að skella inn einu nettu nú þegar vertíðin (verri-tíðin) hefst.

 

Þannig er nú það náttúrulega eins ogallir vita að það eru bara allir í prófum ossona..á fullu að “læra” og þanni stuff J

Já það hefur eitthvað skemmtilegt gerst nýlega eins og árshátíðin í vinnunni minni..Við Eyþór vorum soldið í seinni kantinum en þetta var bara snilld! Ótrúlega skemmtilegt og mikið dansað ;) vorum ekkert ógeðslega seint á ferð..en eitthvað djammað framá nótt.. :D

Uhh..soldið skemmtileg umræða sem kom upp á borðið á mili mín, mömmu Eyþórs og Stefáns..um flug og flugvélar..þanig var það nú að ég í mínum fullkomna heimi hélt að það væru fallhlífar í farþegaflugvélum!!!!(en aldrei pæltí því afhverju það er aldrei sýnt á “in case of emergency” spjaldinu) Og ónei..það eru sko engar fallhlífar “sem hljóta að vera undir sætinu eða eitthvað”!!! Þú bara ert ekki með fallhlíf! Og auðvitað veit ég alveg að maður stekkur ekkert bara út úr flugvél í margra feta hæð eins og pocahontas en samt..bjóstbara við að ef flugvélin væri að hrapa að það væri gert eitthvað neyðar-exit-ing thing...úff..nei ekkert svoleiðis..hurðunum er (auðvitað) læst..en líka með teinum og eitthvað rosa rosa..og flugvélin bara hrapar..og hrapar einhvert..prase lord að það sé sjóinn svo að þessi súperkúl rennibraut poppi nú út og þú lendir í einhverju “mjúku”, en þar er þá ekki meðtalið ef þú lendr akkúrat þar sem hákallar eða annar viðbjóður er (munið að maðurinn hatar það sem hann skilur ekki). Jahá..þá komu upp ýmsar pælingar um það hvort mætti fara með fallhlíf sem handfarangur í vélina..eða einfaldlega fara í flugið/vélina í svona flugbúning:

 

 



 

Gaman hjá Eyþóri þar sem hann fékk loksins borgað fyrir verkefnið stóra ;) Gat gert fullt af skemmtilegum hlutum..og þ.a.m að kaupa sér nýjan síma..sem heyrist ekki einsog þú sért að tala við hann í fellibyl..

 

Uhh..annars ekkert mikið að ské..búin með 1 próf af 3..stærðfræði næst á menuinum L Er ekki að geta einbeitt mér að því að læra vell..bara út af kortinu hér.

Mig langar út að borða núna..mmm..

 

Og síðast en ekki síst....dddrrrrrrrrr
Við erum búin að bóka ferðina okkar til Tenerife í ágúst!!! Wúúúúhúúúúu!!

Þetta verður svo feitt skemmtilegt lagþráð frí á sólarströnd með fallegan kokteil í hönd og sólgleraugu mmm...þess verður notið í botn og erum strax farin að pæla hvað við erum að spá í að gera þarna..jetski, bílaleiga, vespuleiga, spa, veeeeerrrrsla, djamm, go-kart og annað geggjað um að vera.Tenerife..sé þig eftir uhh..hvað eru margir dagar Mr. Teljari? -->

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 12:40:08 / nokom

Söknuður

Hæ..vildi bara skella in einum skemmtilegum hlut sem ég rakst á á netinu ;) þannig nú það bara að ég fann bestu lýsingu á...já sjálfri mér og lífi mínu hérna hahaha: Lögmál Murphys    (mæli með því að lesa ALLA greinina)

Der passende Cartoon zum Text

 

 

Annars lítið að ské hjá mér nema áframhadandi lærdómur og ferð niður í stígamót með Sálfræði...

Vonandi fer ég ekki að grenja..er frekar viðkvæm á svona elliheimilum.. spítölum... sambýlum.. tannlæknastofum.. fangelsum og svoleiðis...

 

Svo eru það góðar fréttir að kötturinn hér er hættur að fara á lóðarí. Klöppum fyrir því!

 

Sakna Yasmín og Eyþórs :(:(!


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 13:14:31 / nokom

Bara hæj..

Ok..bara segja hæ..

 

Djöfull eigum við eftir að vera illa teknar þegar við förum í bootcamp :S Shiii...

Vonandi lendum við ekki í því eins og Apríl greyið í ræktinni í gær..ha..bara prumpandi kall við hliðina á henni útum allt..úff

 

Erum núna í dönsku að horfa á þessa feyki-spennandi mynd REMBRANDT..eða eitthvað svoleiðis..hún er bara biluð. Allt ónýtt. Windows er drasl.

 

Spennandi samræður við matarborðið hjá Apríl Sól í gær..spurning um að taka upp svona hefð..hvernig er húðin eftir smjörið??

 

Eyþór farinn aftur út á land í Benz verkefni L sakna hans..kemur aftur á mánudaginn =7

 

Jámm..ekki mikið að ské annars..Apríl með einhvern svartan lista í vinnslu yfir forboðna hluti..þar verða m.a Nammi og áfengi...
....
..
eitthvað bogið við þetta??? *Hóst !Einhver!?


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 16:07:04 / nokom

Boot camp og hestbak

Já hér kemur þá framhald í rauninni af fyrri pælingum:

 

A: Fara að vinna núna í maí, jún og júl vera bara úti einhverstaðar að flakka í ágúst..kasski líka til útladó svo í sept..vinna svo með skólanum og spara sér eitthvað og reyna síðan líka að ná að borga fyrir ferðina/ búflutninana til spánar eftir útskrift...eða

 

B: Vinna í allt sumar, vetur og vor og fara BARA út til spain eftir stúdó..og nota síðan mánuðina eftir að maður kæmi heim..svona í okt-jan..og vinna og safna upp í íbúð..og fara svo kanski í háskólann haustið 2009??

Úff..hahaha..spurning

 

En jæja..maður er kmin með gott skrið á allesammen núna loksins..ná að læra ossona nema maður er ekki aalllveg að standa sig í ræktinni...en það er þá staðfest..við Maja systir, Apríl og Sandý erum að fara í bootcamp þann 7 mai :D jei!! En þrátt fyrir ítarleg sölutrix og sannfærandi bænir hefur Sunna litla ekki bugast né braggast til að koma með oss í skó-búðir.

 

Svo eru allir bara að fara út hárum og pirrast útí kerfið...Og mig langar eitthvað svo mikið á hestbak..og á ekki hesta..soldið problem hér á ferð hahaha..og ég mútaði Sunnu greyinu mörgum sinnum í gær..en aldrei braggaðist hún! ;) Djók..sorry hvað ég var pirrandi Sunny..

 

Hvað er málið með mig og myndir? Ég tek myndir og set þær hálfu ári seinna inn á netið :S ..ég er bara aldrei með cameruna ettir myndatökur..æji..

 

Maður fer allaf í svona tiltektaræði eða finnur eitthvað sem átti að vera löngu búið eða er óklárað verkefni þegar maður á að fara að læra :S akkuru? Ég er núna síðan í gær búin að gera um 10 þannig hluti!!! Oh þetta verður að vera fljótt að klárast svo maður geti nú farið að sinna því að vera í sumarfríi!!! Sólbað, keyra, sumarbústaðardjamm omfl.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 13:10:47 / nokom

tsssssssssjjjjjjjjj!

Hæhæ..er bara svo stútfull af pælingum akkúrat núna..að mér leið eins og ég væri að gleyma!Og ég vil ekki að það gerist og ákvað þá að nýta mér þessi óbiliuðu lyklaborð í tölvunum á bókasafni skólana og sit núna hér eins og brjálæðingur að pikka á þetta lyklaborð með tilheyrandi látum ;) (Fólkið í kring er farið að horfa núna) 

Já, pælingar..um hvað hmm?? Já það er nú kanski aðallega það að ég var að lesa Sinfjötla (Skólablað MK) sem kom út í dag með köku og látum…En þar erg grein sem mörg ykkar hafa þá séð, sem er um stelpu í MK sem ákvað að elta og framkvæma eitthvað sem var hugmynd í kollinum og hreiðraði um sig þar. Það tók hana ekki meira en 3 daga eða svo að stökkva á það. Og ástæðurnar fyrir því að hún dreif sig að frakvæma hugmyndina sína skipta ekki máli..það er heildarmyndin, og boðskapurinn á bak við greinina; Að þú getur gert það sem þú vilt, hefur valdið til þess og að láta ekki sínar eigin takmarkanir stoppa sig. 

Og það er einmitt málið..ég hef ekki verið þannig venjulega að gera ekki eitthvað í því sem mér dettur í hug (þá kanski ekki svona stóra hluti, en samt, í langflestum tilvikum geri ég það bara) Það er kanski eina góða hliðin á fljótfærininni minni sem hefur átt stóran part í mörgum því sem hefur farið upp og niður hjá mér. En..hvað er þá málið með mig? Núna í 5-6 ár hefur þessi yljandi, draumkennda og kunnuglega hugmynd um að ferðast..búa úti..læra og leika sér á fjarlægum slóðum verið ótrúlega framarlega í huga(ekki bara mér). Við erum ung núna..ekki seinna. Auðvitað er sumt sem er illframkvæmanlegt..eða varla raunhæft (eins og hvað mig langar mikið í tiltekinn bíl *hóst) en þá er samt ekki eins og það sé úr sögunni. Svo koma líka inn aðrir faktorar eins og peningaleysi og ekki að sökkva sér í skuldir, skólinn og annað..en samt..þá er amk. hægt að setja tíma, eða áætlun á eitthvað sem maður vill..og vinna svo að því (Auðvitað er skemmtilegast að geta gert eitthvað svona frekar spontaneously..eða þannig er ég)

Er hugurinn minn orðinn svona fullur af takmörkunum? Það er ekki eins og ég hafi verið þannig krakki..ef eitthvað var þá var ég bara of ímyndunarveik, næstum að hlutirnir spruttu úr hausnum á mér. (Núna er ég að reyna að kreista bíl úr hausnum á mér..)Og hvernig er það; ”Já ég ætla bara að vinna svo mikið í sumar að ég get ekkert gert”.. Er það málið? Af hverju ekki að vinna þessa 2 og ½ mánuð á fullu..eyða sem minnstu (eins og er hægt þá með tilliti til alls sem gerist á sumrin) og fara svo bara eitthvað út í ágúst..bara allan mánuðinn. Og hafa virkilega gaman af því og prófa eitthvað nýtt. Það er ekki eins og maður eigi nokkurntímann pening eftir sumarið..eða ekki ég..og ég er hvort sem er alltaf að vinna með skólanum..so why the hell not!

Og þarna inni í seinasta textabrotinu er einmitt vísun í það sem ég hef tekið ákvörðun um að nota sem hugmyndina að lokaverkefninu mínu í íslensku. Og ég ætla bara að taka stefnuna á það og ekkert vesen (hin hugmyndin VAR of mikið vesen..fyrir utan password sem ég man ekki ofl...) J Ég ætla án gríns að rækta hæfileikann til að koma einhverju frá sér í skrifuðu og teiknuðu máli..alltaf þegar ég reyni, (t.d að teikna) finnst mér eins og hugmyndirnar séu þarna..en þær eru bara lokaðar af eins og stífla í á. Mig vantar að..uh..skrúfa frá hahaha!Já..þetta var svona smá losun á hugsunum sem allt í einu streymdu um hausinn á mér..”ég er svo vit” Hahahaha djók ;)

Uhh..ætla bara að stoppa núna..ég var eins og brálæðingur hér á þessu lyklaborði..tók um 7 mínútur að skrifa þetta. Bæj á meðan =D Inga


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 00:23:53 / nokom

Fangs

ÆÆh kæru vin..ég bara verð að henda inn einu stuttu ;)

Hehe..jáwww..það var víst voða lítið um vinahitting þessa helgina sökum vinnu og ofdykkju á vodka...NAAAT..akkúrat öfugt heldég? :!:

Og hvað hef ég þá skemmtilegt að segja ykkur ha..hm...

Já við Eyþór fórum bara í homie fílinginn og leigðum okkur vídjó :D Ójá við gerðum þa..við leigðum (með einróma samþykki) Little miss Sunshine. Og hún var geðveik :lol:. Þessi frumlega mynd hefur allar hliðar sem mynd getur haft; fyndin, sorgleg, þunglynd, pínleg, drama, “hrollvekjudrama”, drepfyndin, draumleg og upplyftandi...fyrir utan gott leikaraval. En í stuttu sagt ætla ég að kaupa mér þessa mynd...ein af þeim sem verður að vera til J

 

Ég er líka búin að vera voða dugleg að gera tilraun til að tæma alveg þvottakörfuna mína..en ég er farin að halda að hún sé botnlaus??:!:

 

Get ekki beðið eftir að fara að sökkva tönnunum í House og Heroes á næstunni... grwarw

 

Speeking of teeth...Í dag afgreiddi ég konu sem lét mér í té eitt skemmtilegtasta og frumlegasta komment sem ég hef fengið hehe..semsagt er að afgreiða þessa ofurhressu og töff konu, og eftir smá djók í okkur segir hún við mig; “Hey þú ert með sjúklega flottar vígtennur! Mig langaði alltaf svo í svona tennur þegar ég var yngri, og ég er bara þannig að þegar ég sé eitthvað flott á fólki þá segi ég því það bara”. Og ég var bara...? takk haha..þetta er arfgengt...

Vá þetta hef ég aldrei heyrt! Hehe..:P

 

Uhm og já hahahahahaha ég ætla að setja inn link á video sem Maja systir sýndi mér áðan og við lágum í krampahláturskasti á gólfinu og upp um veggina! :D Ég segi ölum að kíkja á þetta!! Set þetta inn í fyndnu hluta dótið hér til vinstri ;) :lol::D

 

Já gott fólk þá ætla ég líklegast ekki að hafa þetta lengra núna...En fyrst ein pæling:

Hvernig væri það ef þú værir að vinna á einhverjum stað (og ert semsagt KVK), og ert auðvitað að vinna með fleiri KVK. Og þú átt barn með KK sem þú ert ekki með...

Gefum okkur það núna, að ein af samstarfs KVK þínum myndi óvart byrja að deita föður barns þíns, og þau myndu bara hit it heavy off. Og hún yrði skyndilega hálfpartinn stjúpmamma barns þíns!

 

Hehe..kveð ykkur sykurpúðar ;) GN


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7